Identity area
Reference code
HunV9-B-1-10-004
Title
Elín Þorláksdóttir og Sigfús Árnason Stöpum á Vatnsnesi
Date(s)
- Ýmis ártöl (Creation)
Level of description
Item
Extent and medium
- Hjónin Elín Þorláksdóttir (1880-1962) og Sigfús Árnason (1879-1966) Stöpum á Vatnsnesi.
Eftirfarandi skráning fylgdi myndinni:
Hjónin Elín Þorláksdóttir (f. 30. apríl 1880 í Gottorp í Þverárhreppi) og Sigfús Árnason (f. 5. ágúst 1879 í Stöpum á Vatnsnesi). Þau giftust 21 apríl 1904, fara þá að búa í Stöpum og búa þar í 40 ár. Þau voru barnlaus. Árið 1945 gera þau jörðina að ættaróðali og var systurdóttir Sigfúsar, Seselía Guðmundsdóttir valin til að taka við jörðinni ásamt manni sínum Eðvald Halldórssyni. Að sjálfsögðu voru þau Sigfús og Elín áfram í Stöpum á meðan heilsan leifði. Þau dóu bæði á sjúkrahúsinu á Hvammstanga, Elín 9. ágúst 1962 og Sigfús 15. ágúst 1966. Þau voru jarðsett í heimagrafreit í Stöpum. Lára Ólafsdóttir systurdóttir Sigfúsar lengi húsfrú á Hrafnkellsstöðum í Fljótsdal óskaði eftir að skjalasafn Vestur-Húnavatnssýslu varðveitti þessa mynd til minningar um þessi merku heiðurshjón. Myndin afhent skjalasafni 29. júlí 1979. Skráning gerð af Eðvald Halldórssyni.