Sýnir 404 niðurstöður

Lýsandi samantekt
Mynd Enska
Prenta - forskoðun View:

404 niðurstöður með stafrænum einingum Sýna niðurstöður með stafrænum einingum

Réttir í Miðfirði, Húnaþingi vestra.

JA - 1 - 151. Í Miðfjarðarrétt í Miðfirði. Frá vinstri talið Karl Ásgeir Sigurgeirsson (1943) frá Bjargi, eldri maður í brúnum jakka og með derhúfu er Trausti Jónasson (1922-2001) bóndi Hvalshöfða, í bláum galla (sést bara efri partur) er Björn Björnsson (1950) bóndi á Syðri-Reykjum, á móti Birni er Guðmundur „Gúndi“ Sigurðsson (1955) brúarsmiður Hvammstanga, fyrir aftan hann í köflóttri skyrtu er Níels Ívarsson (1954), í appelsínum pollabuxum alskeggjaður er Ari Guðmundsson (1921-2005) bóndi á Efri-Svertingsstöðum,lengst til hægri er stelpa í lopapeysu Hólmfríður Birna Björnsdóttir (1974) frá Syðri-Reykjum og fyrir aftan hana er Jón Böðvarsson (1949) bóndi á Syðsta-Ósi.

Án titils

Réttir í Miðfirði, Húnaþingi vestra.

JA - 1 - 152. Í Miðfjarðarrétt í Miðfirði. Frá vinstri í grænum stekk er Ingi Hjört Bjarnason (1965) frá Svertingsstöðum, við hlið hans með köflótta húfu er Guðmundur Karlsson (1931-2017) bóndi á Mýrum 3, lengra til hægri í brúnum léttum stakk og með brúnleita derhúfu er Benedikt Guðmundsson (1905-1990) bóndi á Staðarbakka I, fyrir aftan hann í köflóttri peysu er María Heiðland Sigurlaugsdóttir (1955) frá Staðarbakka II, lengst til hægri í brúnni rúllukragapeysu er Jón Ívar Jónsson (1946) bóndi á Skarfshóli.

Án titils

Ragnar Gunnlaugsson

JA - 1 - 27. Ragnar Gunnlaugsson (1941) heldur í kind og er með hrút í bandi. Ragnar er bróðir Egils. Myndin er tekin á árunum 1966 eða 1967. Hrúturinn var kallaður Valdi og var frá Valdalæk. Fjárhúsin voru upphaflega hesthús byggt við hlöðu frá 1930, en endurbyggð sem fjárhús um 1960.

Niðurstöður 91 to 100 of 404