Safn HunV4 - Þorkelshólshreppur

Auðkenni

Tilvísunarkóði

HunV4

Titill

Þorkelshólshreppur

Dagsetning(ar)

  • Ýmis ártöl (Sköpun)

Þrep lýsingar

Safn

Umfang og efnisform

Skannað voru
Tvær sveitabækur Þorkelshólshrepps.
Fyrri bókin er frá 1855 - 1886.
Seinni bókin er frá 1860 - 1873.

Þrjár hreppsbækur Þorkelshólshrepps.
Fyrsta bókin er fyrir árin 1876 - 1909.
Önnur bókin er fyrir árin 1908/09 - 1933.
Þriðja bókin er fyrir árin 1933 - 19445.

Ein úttektarbók Þorkelshólshrepps.
Bókin er fyrir árin 1923 - 1997.

Samhengi

Nafn skjalamyndara

Lífshlaup og æviatriði

Varðveislusaga

Í bókinni Húnaþing II sem gefin var út 1975 segir um Þorkelshólshrepp skrifað af Sigurði J. Líndal .: Sveitin er í daglegu tali nefnd Víðidalur. Í Vatnsdælasögu segir frá því að Ingimundur gamli gaf sveitinni nafn þá er hann fór hér um sveitir á leið til landsnáms í Vatnsdal.
Sveitamörk eru Hópið að norðanverðu og síðan Gljúfurá að austan þó þannig að Þingeyrarselsland sem er að austanverðu í Víðidalsfjalli er í Sveinsstaðahreppi.
Að vestanverðu eru sveitamörk miðað við landslag, fremur óglögg en takmarkast frá Hópi um Víðidalsá fram að Síðukrók. Þaðan eru sveitamörk beint vestur og vestur á Bjargsbrún. Vestan við Björgin er í Þorkelshólshreppi, jörðin Sporður sem ekki fylgir Víðidal eftir legu landslags og fylgir Vesturhópssvæðinu með vegasamband og vatnasvið. Falla sveitamörk að Reyðalæk og í Miðfjarðarvatn austanvert. Síðan liggja þau austur frá Miðfjarðarvatni og austur Fitjá á mörkum á milli Hrísa og Fremri-Fitja. Síðan ræður Fitjá sveitamörkum svo langt sem byggð nær og síðan áfram suður heiðina þar til kemur á móts við Geiraldsgnýpu. Geiraldsgnýpa er á merkjum á milli Víðdælinga og Miðfjarðar og síðan bein sjónhending á Réttarvatnstanga.
Suður og austurmörk Víðidalstunguheiðar hafa verið svo lengi sem vitað er, úr Réttarvatni til austurs um Langjörfa og í Hrútagil. Frá miðju Bláfelli liggja mörkin til norðurs sem næst því sem vötn falla til austurs og vesturs um Sandhorn og Hraungarða og síðan Heiðamótaás. Á suðurkanti Víðidalstunguheiðar lágu merki saman milli Viðdælinga og Borgfirðinga, þ.e. Víðidalstungu og Kalmannstungu. Víðidalsá og Fitjá falla undan Stórasandi vestanverðum, Fitjá litlu sunnar en Víðidalsá. Þær falla síðan norður heiðina til Víðidals og falla saman í dalbotninum norðan við Víðidalstungu.
Landfræðilega er Víðidalur í aðalatriðum á milli Víðidalsfjalls og Bjarga að vestan, sem er röð af löngu kulnuðum gosgígum.
Landrými er mikið og grösugt og útbeit góð að gömlu mati. Þess vegna hefur oft verið reisn yfir búskap í Víðidal, einkum þegar árferði hefur verið gott en vont árferði fljótt að segja til sín í minnkuðum bústofni. Frá fornu fari hafa nokkrar jarðir í Víðidal verið öðrum fremri um landrými og landkosti, sumar bæði til slægna og beitar. Hafa þær jarðir að sjálfsögðu byggst á landnámsöld meðan landrými var nóg. Þó hefur Víðidalstunga þar sérstöðu um landstærð og umsvif húsbænda þar á ýmsum tímum sögunnar. Svo er talið að þar hafi niðjar sömu ætttar búið frá því um 1400 og þar til 1870 þegar Páll Vídalín, dugmikill gáfumaður, féll frá á besta aldurskeiði. Jörðinni fylgdi auk heimajarðar 9 jarðir í framhluta Víðidals. Auk þess Víðidalstunguheiði. Á fyrri öldum mun heiðin fyrir austan Víðidalsá hafa verið kölluð Ásgeirsheiði og notuð svo sem enn er gert af bændum austan Víðidalsár. Hélst svo meðan kirkja var á Stóru-Ásgeirsá en í máldaga frá tíð Guðbrands biskups Þorlákssonar er þar kölluð hálfkirkja. En þessi kirkja lagðist þar niður og kirkjusókn féll til Víðidalstungu og fylgdi heiðin síðan í kjölfarið.
Víðidalstunguheiði er flatlendi þegar á heildina er litið og gott beitiland. Sumstaðar er votlendi, flár gjarnan með broki eða starrargróðri. Víða eru vötn en ekki víðáttumikil en silungsveiði er í öllum vötnum. Hefir það mörgum orðið gott búslag. Fjalltoll skyldu bændur greiða eigendum Víðidalstungu. Segir svo í máldaga Péturs biskups frá árinu 1394 og einning máldaga Ólafs Rögnvaldssonar biskups frá árinu 1461 að gjalda skyldi 1 lamb af hverjum rekstri til þess að eru 6 tugir. Oftast mun þó hafa verið látið nægja eitt lamb af hverjum rekstri en dómur féll um það um 1860 að máldagann beri að skilja svo að gjalda skyldi eitt lamb fyrir hverja 6 tugi. Á árunum 1882-1895 stóð langvinnt málþras og síðan málaferli í sambandi við afnotarétt af heiðinni og gjald fyrir hann. Í framhaldi af þeim urðu þau endalok að Þorkelshólshreppur keypti Víðidalstunguheiði af eigendum Víðidalstungueigna árið 1902. Landssvæðið á milli ánna er nefnt Tunga og er sú nafngift notuð bæði í byggð og óbyggð fram í Fitjárdrög. En nefnt er Austurtunga og Vesturtunga eftir því hvort vatn fellur til Víðidalsár eða Fitjár. Bæði Fitjá og Víðidalsá eru góðar veiðiár. Fitjá með lax en Víðidalsá bæði með lax og bleikju. Ekki eru árnar torfærar nema í vatnavöxtum. Ferjustaðir á Víðidalsá voru tveir, á Ferjuhyl neðan við Stóru-Borg og hjá Galtanesi. Fjölfarnasta vaðið á Víðidalsá var Steinsvað en um það lá þjóðvegurinn áður en brú var gerð. En þrautavað var í Breið sem er norðan við Síðu og þaðan oft farið þegar annað var ófært. Íbúar í Þorkelshólshreppi eru 206 árið 1976.

Um aðföng eða flutning á safn

Innihald og uppbygging

Umfang og innihald

Grisjun, eyðing og áætlun

Viðbætur

Skipulag röðunar

Skilyrði um aðgengi og not

Skilyrði er ráða aðgengi

Skilyrði er ráða endurgerð

Tungumál efnis

    Leturgerð efnis

      Athugasemdir um tungumál og letur

      Umfang og tæknilegar þarfir

      Leiðarvísir

      Tengd gögn

      Staðsetning frumrita

      Staðsetning afrita

      Tengdar einingar

      Related descriptions

      Athugasemdir

      Annað auðkenni

      Aðgangsleiðir

      Efnisorð

      Staðir

      Nöfn

      Genre access points

      Um lýsinguna

      Lýsinganúmer

      VLS

      Kennimark stofnunar

      IS HVH

      Reglur eða aðferð sem stuðst er við

      Staða

      Loka

      Skráningarstaða

      Fullt

      Dates of creation revision deletion

      26.01.2026

      Tungumál

      • íslenska

      Leturgerð(ir)

        Heimildir

        Aðföng