Miðfjörður, Húnaþingi vestra

Taxonomy

Code

Scope note(s)

Source note(s)

Display note(s)

Hierarchical terms

Miðfjörður, Húnaþingi vestra

Equivalent terms

Miðfjörður, Húnaþingi vestra

Associated terms

Miðfjörður, Húnaþingi vestra

20 Archival description results for Miðfjörður, Húnaþingi vestra

20 results directly related Exclude narrower terms

Réttir í Miðfirði, Húnaþingi vestra.

JA - 1 - 152. Í Miðfjarðarrétt í Miðfirði. Frá vinstri í grænum stekk er Ingi Hjört Bjarnason (1965) frá Svertingsstöðum, við hlið hans með köflótta húfu er Guðmundur Karlsson (1931-2017) bóndi á Mýrum 3, lengra til hægri í brúnum léttum stakk og með brúnleita derhúfu er Benedikt Guðmundsson (1905-1990) bóndi á Staðarbakka I, fyrir aftan hann í köflóttri peysu er María Heiðland Sigurlaugsdóttir (1955) frá Staðarbakka II, lengst til hægri í brúnni rúllukragapeysu er Jón Ívar Jónsson (1946) bóndi á Skarfshóli.

Egill Gunnlaugsson (1936 - 2008)

Réttir í Miðfirði, Húnaþingi vestra.

JA - 1 - 151. Í Miðfjarðarrétt í Miðfirði. Frá vinstri talið Karl Ásgeir Sigurgeirsson (1943) frá Bjargi, eldri maður í brúnum jakka og með derhúfu er Trausti Jónasson (1922-2001) bóndi Hvalshöfða, í bláum galla (sést bara efri partur) er Björn Björnsson (1950) bóndi á Syðri-Reykjum, á móti Birni er Guðmundur „Gúndi“ Sigurðsson (1955) brúarsmiður Hvammstanga, fyrir aftan hann í köflóttri skyrtu er Níels Ívarsson (1954), í appelsínum pollabuxum alskeggjaður er Ari Guðmundsson (1921-2005) bóndi á Efri-Svertingsstöðum,lengst til hægri er stelpa í lopapeysu Hólmfríður Birna Björnsdóttir (1974) frá Syðri-Reykjum og fyrir aftan hana er Jón Böðvarsson (1949) bóndi á Syðsta-Ósi.

Egill Gunnlaugsson (1936 - 2008)

Réttir í Miðfirði, Húnaþingi vestra.

JA - 1 - 150. Í Miðfjarðarrétt í Miðfirði. Frá vinstri aftarlega, strákur í blárri peysu er Jón Magnússon (1969) frá Staðabakka II, við hlið hans í bláum galla (sést bara efri partur) er Björn Björnsson (1950) bóndi á Syðri-Reykjum, fyrir aftan hann með svarta húfu er Guðrún Þórdís Magnúsdóttir (1913-2002) bóndi á Saurum, fremst fyrir miðri mynd er Jón Böðvarsson (1949) bóndi á Syðsta-Ósi, fyrir framan en aftar er Guðmundur „Gúndi“ Sigurðsson (1955) brúarsmiður Hvammstanga, vinstra megin við í bleikri peysu er Gerður Salóme Ólafsdóttir (1952) bóndi á Syðri-Reykjum, fyrir framan hana í lopapeysu er dóttir hennar Hólmfríður Birna Björnsdóttir (1974) frá Syðri-Reykjum, aðrir óþekktir.

Egill Gunnlaugsson (1936 - 2008)

Réttir í Miðfirði, Húnaþingi vestra.

JA - 1 - 149. Í Miðfjarðarrétt í Miðfirði. Frá vinstri Stefán Eggert Pétursson (1932-2014) bóndi Brúarholti, í appelsínum galla er Björn Einarsson (1941-1992) bóndi Bessastöðum, hægra megin á mynd með hvíta húfu og í hvítri peysu er Valgerður Þorvarðardóttir (1940) þáverandi bóndi á Söndum, fyrir aftan hana í rauðri peysu er Friðrik Böðvarsson (1952-2009) bóndi á Syðsta-Ósi, fyrir framan þau í bláum galla er Björn Björnsson (1950) bóndi á Syðri-Reykjum, fremst í grænum regnbuxum er Karl Ásgeir Sigurgeirsson (1943) frá Bjargi.

Egill Gunnlaugsson (1936 - 2008)

Mannlífsmynd frá 50.ára afmælishátíð Hvammstangahrepps 8. - 10.júlí 1988.

JA - 1 - 135. Mannlífsmynd frá 50.ára afmælishátíð Hvammstangahrepps 8. - 10.júlí 1988. Frá vinstri við kofan er Einar Friðgeir Björnsson (1970) frá Bessastöðum í Miðfirði, standandi og snýr baki í myndasmið er Inga Guðmundsdóttir (1950), sitjandi eru næst kofanum Aðalheiður Sveina „Alla“ Einarsdóttir (1962) þá Þórhallur „Haddi“ Jónsson (1952), svo Skúli Árnason (1931-1994) frá Gnýsstöðum á Vatnsnesi, þá Björn Þórir „Bangsi“ Sigurðsson (1935-2018) þá Böðvar Stefán „Böddi“ Daníelsson (1923-1998) frá Fossseli í Miðfirði þá Guðmundur Stefán „Stebbi Þórhalls“ Þórhallsson ( 1931-2020) og síðastur er Sigurður Gestsson (1918-2004) „Siggi í Mörk“ frá Mörk á Vatnsnesi. Að auki er kvikmyndafólk allt óþekkt.

Mannlífsmynd frá 50.ára afmælishátíð Hvammstangahrepps 8. - 10.júlí 1988.

JA - 1 - 133. Mannlífsmynd frá 50.ára afmælishátíð Hvammstangahrepps 8. - 10.júlí 1988. Frá vinstri við kofan er Einar Friðgeir Björnsson (1970) frá Bessastöðum í Miðfirði, sitjandi eru næst kofanum Aðalheiður Sveina „Alla“ Einarsdóttir (1962) þá Þórhallur „Haddi“ Jónsson (1952), svo Björn Þórir „Bangsi“ Sigurðsson (1935-2018) þá Böðvar Stefán „Böddi“ Daníelsson (1923-1998) frá Fossseli í Miðfirði og aftast í röðinni er Guðmundur Stefán „Stebbi Þórhalls“ Þórhallsson ( 1931-2020), standi fyrir aftan er Sigurður Gestsson (1918-2004) „Siggi í Mörk“ frá Mörk á Vatnsnesi og að bjóða meðlæti er Inga Guðmundsdóttir (1950).

Egill Gunnlaugsson (1936 - 2008)

Mannlífsmynd frá 50.ára afmælishátíð Hvammstangahrepps 8. - 10.júlí 1988.

JA - 1 - 132. Mannlífsmynd frá 50.ára afmælishátíð Hvammstangahrepps 8. - 10.júlí 1988. Par lengst til vinstri Inga Guðmundsdóttir (1950) og Þórhallur „Haddi“ Jónsson (1952), við kofan stendur og spilar á harmonikku (sést ekki) Einar Friðgeir Jónsson (1970) frá Bessastöðum í Miðfirði, par við kofan er Aðalheiður Sveina „Alla“ Einarsdóttir (1962) og Guðmundur Stefán „Stebbi Þórhalls“ Þórhallsson (1931-2020), við kofan að horfa í grárri peysu er Björn Þórir „Bangsi“ Sigurðsson (1935-2018), í röndóttri lopapeysu er Böðvar Stefán „Böddi“ Daníelsson (1923-1998) frá Fossseli í Miðfirði og hjá honum stendur Sigurður Gestsson (1918-2004) „Siggi í Mörk“ frá Mörk á Vatnsnesi.

Results 1 to 10 of 20