Miðfjörður, Húnaþingi vestra

Elements area

Taxonomy

Kóði

Athugsemd(ir) um umfang

    Athugasemd(ir) um heimild

      Birta athugasemd(ir)

        Hierarchical terms

        Miðfjörður, Húnaþingi vestra

          Equivalent terms

          Miðfjörður, Húnaþingi vestra

            Tengd hugtök

            Miðfjörður, Húnaþingi vestra

              21 Lýsandi samantekt results for Miðfjörður, Húnaþingi vestra

              IS HVH103-J-JA-1-107 · Eining · Ýmis ártöl
              Part of Egill Gunnlaugsson (1936 - 2008)

              JA - 1 - 107. Mannlífsmynd frá 50.ára afmælishátíð Hvammstangahrepps 8. - 10.júlí 1988. Þórhallur „Haddi“ Jónsson (1952), vera í svörtum fötum er Aðalheiður Sveina Einarsdóttir (1962) „Alla“. Myndatökufólk óþekkt. Drengurinn aftast er Einar Friðgeir Björnsson (1970) frá Bessastöðum í Miðfirði..

              IS HVH103-J-JA-1-118 · Eining · Ýmis ártöl
              Part of Egill Gunnlaugsson (1936 - 2008)

              Mannlífsmynd frá 50.ára afmælishátíð Hvammstangahrepps 8. - 10.júlí 1988. Fremst eru frá vinstri talið Björn Þórir „Bangsi“ Sigurðsson (1935-2018), hjá honum stendur í brúnum fötum Þórhallur „Haddi“ Jónsson (1952), fyrir aftan þá við kofan stendur Einar Friðgeir Björnsson (1970) og fyrir framan kofan stendur Aðalheiður Sveina „Alla“ Einarsdóttir (1962).

              IS HVH103-J-JA-1-132 · Eining · Ýmis ártöl
              Part of Egill Gunnlaugsson (1936 - 2008)

              JA - 1 - 132. Mannlífsmynd frá 50.ára afmælishátíð Hvammstangahrepps 8. - 10.júlí 1988. Par lengst til vinstri Inga Guðmundsdóttir (1950) og Þórhallur „Haddi“ Jónsson (1952), við kofan stendur og spilar á harmonikku (sést ekki) Einar Friðgeir Jónsson (1970) frá Bessastöðum í Miðfirði, par við kofan er Aðalheiður Sveina „Alla“ Einarsdóttir (1962) og Guðmundur Stefán „Stebbi Þórhalls“ Þórhallsson (1931-2020), við kofan að horfa í grárri peysu er Björn Þórir „Bangsi“ Sigurðsson (1935-2018), í röndóttri lopapeysu er Böðvar Stefán „Böddi“ Daníelsson (1923-1998) frá Fossseli í Miðfirði og hjá honum stendur Sigurður Gestsson (1918-2004) „Siggi í Mörk“ frá Mörk á Vatnsnesi.

              IS HVH103-J-JA-1-135 · Eining · Ýmis ártöl
              Part of Egill Gunnlaugsson (1936 - 2008)

              JA - 1 - 135. Mannlífsmynd frá 50.ára afmælishátíð Hvammstangahrepps 8. - 10.júlí 1988. Frá vinstri við kofan er Einar Friðgeir Björnsson (1970) frá Bessastöðum í Miðfirði, standandi og snýr baki í myndasmið er Inga Guðmundsdóttir (1950), sitjandi eru næst kofanum Aðalheiður Sveina „Alla“ Einarsdóttir (1962) þá Þórhallur „Haddi“ Jónsson (1952), svo Skúli Árnason (1931-1994) frá Gnýsstöðum á Vatnsnesi, þá Björn Þórir „Bangsi“ Sigurðsson (1935-2018) þá Böðvar Stefán „Böddi“ Daníelsson (1923-1998) frá Fossseli í Miðfirði þá Guðmundur Stefán „Stebbi Þórhalls“ Þórhallsson ( 1931-2020) og síðastur er Sigurður Gestsson (1918-2004) „Siggi í Mörk“ frá Mörk á Vatnsnesi. Að auki er kvikmyndafólk allt óþekkt.

              IS HVH103-J-JA-1-149 · Eining · Ýmis ártöl
              Part of Egill Gunnlaugsson (1936 - 2008)

              JA - 1 - 149. Í Miðfjarðarrétt í Miðfirði. Frá vinstri Stefán Eggert Pétursson (1932-2014) bóndi Brúarholti, í appelsínum galla er Björn Einarsson (1941-1992) bóndi Bessastöðum, hægra megin á mynd með hvíta húfu og í hvítri peysu er Valgerður Þorvarðardóttir (1940) þáverandi bóndi á Söndum, fyrir aftan hana í rauðri peysu er Friðrik Böðvarsson (1952-2009) bóndi á Syðsta-Ósi, fyrir framan þau í bláum galla er Björn Björnsson (1950) bóndi á Syðri-Reykjum, fremst í grænum regnbuxum er Karl Ásgeir Sigurgeirsson (1943) frá Bjargi.

              Án titils
              IS HVH103-J-JA-1-151 · Eining · Ýmis ártöl
              Part of Egill Gunnlaugsson (1936 - 2008)

              JA - 1 - 151. Í Miðfjarðarrétt í Miðfirði. Frá vinstri talið Karl Ásgeir Sigurgeirsson (1943) frá Bjargi, eldri maður í brúnum jakka og með derhúfu er Trausti Jónasson (1922-2001) bóndi Hvalshöfða, í bláum galla (sést bara efri partur) er Björn Björnsson (1950) bóndi á Syðri-Reykjum, á móti Birni er Guðmundur „Gúndi“ Sigurðsson (1955) brúarsmiður Hvammstanga, fyrir aftan hann í köflóttri skyrtu er Níels Ívarsson (1954), í appelsínum pollabuxum alskeggjaður er Ari Guðmundsson (1921-2005) bóndi á Efri-Svertingsstöðum,lengst til hægri er stelpa í lopapeysu Hólmfríður Birna Björnsdóttir (1974) frá Syðri-Reykjum og fyrir aftan hana er Jón Böðvarsson (1949) bóndi á Syðsta-Ósi.

              Án titils