Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Ingólfur Albert Guðnason (1926 - 2007)
Hliðstæð nafnaform
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
27.02.1926 - 14.03.2007
Saga
Ingólfur lauk Samvinnuskólaprófi 1947. Sótti þriggja mánaða námskeið í meðferð og viðhaldi landbúnaðarvéla í Bandaríkjunum 1956. Starfsmaður Kaupfélags Vestur-Húnvetninga á Hvammstanga 1947–1949. Vann við og rak ásamt Karli Guðmundssyni bifreiðaverkstæði á Laugarbakka í Miðfirði 1950–1959. Sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Vestur-Húnavatnssýslu á Hvammstanga 1959–1995. Hreppstjóri Hvammstangahrepps 1960–1995. Í hreppsnefnd Hvammstangahrepps 1966–1970. Formaður skólanefndar Héraðsskólans á Reykjum 1971–1981. Alþingismaður fyrir Norðurland vestra 1979–1983 (Framsfl.). Sat m.a. fundi Evrópuráðsins á vegum Alþingis 1980–1983.
10 ára að aldri fór Ingólfur í fóstur til móðursystur sinnar Þórðveigar og eiginmanns hennar Davíðs Þorgrímssonar á Mið-Kárastöðum á Vatnsnesi.
Staðir
Vatnsdalur við Súgandafjörð 1926.
Laugarbakki, Miðfirði, Húnaþingi vestra 1950 - 1959.
Hvammstangi, Húnaþingi vestra 1959 - 1995.
Réttindi
Starfssvið
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Ingólfur Albert Guðnason fæddist í Vatnadal við Súgandafjörð 27. febrúar 1926. Hann lést á Landspítalanum 14. mars 2007.
Foreldrar hans voru hjónin Guðni Albert Guðnason bóndi, f. 17. október 1895, d. 3. apríl 1930, og Kristín Jósepsdóttir húsmóðir, f. 20. september 1898, d. 23. mars 1977.
Systkini Ingólfs:
Guðni Egill, f. 28.8. 1923, d. 17.12.2012..
Samúel Kristinn, f. 13.7. 1924, d. 02.08.2011.
Guðný Kristín, f. 22.7. 1930, d. 26.11.2022.
Ingólfur kvæntist 25.12. 1947 Önnu Guðmundsdóttur, f. 12.6. 1926, d. 01.04.2010. Foreldrar hennar voru Guðmundur Guðmundsson, bóndi á Þorfinnstöðum í Vesturhópi, f. 6.8. 1876, d. 11.5. 1959, og Sigríður Jónsdóttir, f. 30.4. 1900, d. 19.5. 1982.
Ingólfur og Anna eignuðust þrjú börn.
1) Óskírður drengur, f. 6.9. 1948, d. 7.9. 1948.
2) Kolbrún hárgreiðslumeistari, f. 22.5. 1951
3) Guðmundur, f. 21.9. 1953, hópstjóri í Reykjavík.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Maintained by
Kennimark stofnunar
IS HVH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Hluti
Skráningardagsetning
Tungumál
- íslenska