JA - 1 - 155. Við Hamarrétt á Vatnsnesi. Vinstra megin er Guðjón Jósefsson (1909-1989) bóndi á Ásbjarnarstöðum, maður í grænni úlpu og með köflótta derhúfu er Árni Eyjólfur A.Hraundal (1916-1988) og lengst til hægri er Guðmundur Helgi „Guðmundur góði“ Sigurðsson (1910-1989) bjó í Holti á Hvammstanga.
JA - 1 - 197. Börn á mynd frá vinstri Eva, Elísabet með Egil Högna í fanginu, Hjördís. (aftan á mynd virðist standa: Börn Önnu Stellu Egilsdóttur Eva,Elísabet og Hjördís og sonur Jóhönnu Egilsd Högni).
JA - 1 - 214. Í Víðidalstungurétt í Víðidal. Vinstra megin á mynd uppá vegg er Jónína Ragna Sigurbjartsdóttir (1959) með flétturnar og við hlið hennar er Sigrún Herdís „Heddý“ Sigurbjartsdóttir (1957), maður með há kollvik rétt hjá þeim er Bjarni Kristmundsson „Bjarni í Dal“ (1930-2011), aðrir óþekktir.