JA - 1 - 215. Í Víðidalstungurétt í Víðidal. Konan lengst til vinstri er Sigrún „Didda“ Ólafsdóttir (1941), haldandi á barni er Sigfús Sigfússon „Fúsi í Gröf“ (1917-2002), aðrir óþekktir.
JA - 1 - 221. Í Víðidalstungurétt í Víðidal. Lengst til hægri er Jóhann Hermann Sigurðsson (1936-2003) bóndi í Litlu-Hlíð, fyrir framan hann er ljóshærður maður í ljósum jakka og lopapeysu það er Gunnlaugur Björnsson (1937) þáverandi bóndi í Nípukoti hjá honum stendur í köflóttri yfirhöfn Sigrún Þórisdóttir (1945) eiginkona hans, hjá þeim stendur Bjarni Kristmundsson „Bjarni í Dal“ (1930-2011), aðrir óþekktir.
JA - 1 - 27. Ragnar Gunnlaugsson (1941) heldur í kind og er með hrút í bandi. Ragnar er bróðir Egils. Myndin er tekin á árunum 1966 eða 1967. Hrúturinn var kallaður Valdi og var frá Valdalæk. Fjárhúsin voru upphaflega hesthús byggt við hlöðu frá 1930, en endurbyggð sem fjárhús um 1960.
JA - 1 - 211. Í Víðidalstungurétt í Víðidal. Fyrir miðri mynd jakkafataklæddur maður að halda í kind er Jóhann Hermann Sigurðsson (1936 – 2003) bóndi í litlu-Hlíð, aðrir óþekktir.
JA - 1 - 25. Aftan á mynd stendur: Systkinin á Bakka um 1934. Ljósm.Gunnlaugur Auðunn. Ingibjörg f.1922. Jóhanna f.1934. Björn Teitur f.1935. Jóhannes f.1929. Elísabet f.1932.
Ingibjörg f. 7.júní. 1922, d.16.ágúst.1994. Jóhanna f. 22. febrúar 1924. Björn Teitur f. 25.september, 1926 d.16.desember 2012. Jóhannes f. 9.ágúst 1929, d.23.nóvember 2013. Elísabet f. 13.júlí 1932.
JA - 1 - 214. Í Víðidalstungurétt í Víðidal. Vinstra megin á mynd uppá vegg er Jónína Ragna Sigurbjartsdóttir (1959) með flétturnar og við hlið hennar er Sigrún Herdís „Heddý“ Sigurbjartsdóttir (1957), maður með há kollvik rétt hjá þeim er Bjarni Kristmundsson „Bjarni í Dal“ (1930-2011), aðrir óþekktir.