Húnaþing vestra

Elements area

Taxonomy

Kóði

Athugsemd(ir) um umfang

    Athugasemd(ir) um heimild

      Birta athugasemd(ir)

        Hierarchical terms

        Húnaþing vestra

          Equivalent terms

          Húnaþing vestra

            Tengd hugtök

            Húnaþing vestra

              111 Lýsandi samantekt results for Húnaþing vestra

              111 niðurstöður tengjast beint Exclude narrower terms
              Ragnar Gunnlaugsson
              IS HVH103-J-JA-1-27 · Eining · Ýmis ártöl
              Part of Egill Gunnlaugsson (1936 - 2008)

              JA - 1 - 27. Ragnar Gunnlaugsson (1941) heldur í kind og er með hrút í bandi. Ragnar er bróðir Egils. Myndin er tekin á árunum 1966 eða 1967. Hrúturinn var kallaður Valdi og var frá Valdalæk. Fjárhúsin voru upphaflega hesthús byggt við hlöðu frá 1930, en endurbyggð sem fjárhús um 1960.

              IS HVH103-J-JA-1-72 · Eining · Ýmis ártöl
              Part of Egill Gunnlaugsson (1936 - 2008)

              JA - 1 - 72. Mannlífsmynd frá 50.ára afmælishátíð Hvammstangahrepps 8. - 10.júlí 1988. Efst til hægri er alskeggjaður maður það er Örn Ingi Gíslason (1945-2017) myndlistarmaður Fremst á mynd er maður í grænum frakka og með kaskeiti er Jóhann Sveinn Guðjónsson (1948-1994). Neðst til hægri er maður í gráum jakka haldandi á barni í marglita úlpu er Valur Gunnarsson (1958) og líklega mun barnið vera dóttir hans Hildur (1986). Aðrir óþekktir.

              IS HVH103-J-JA-1-121 · Eining · Ýmis ártöl
              Part of Egill Gunnlaugsson (1936 - 2008)

              JA - 1 - 121. Mannlífsmynd frá 50.ára afmælishátíð Hvammstangahrepps 8. - 10.júlí 1988. Frá vinstri við kofan eru Einar Friðgeir Björnsson (1970) við hlið hans er Inga Guðmundsdóttir (1950), framar eru Björn Þórir „Bangsi“ Sigurðsson (1935-2018), hjá honum stendur í brúnum fötum Þórhallur „Haddi“ Jónsson (1952) að skoða ull og Aðalheiður Sveina „Alla“ Einarsdóttir (1962) er að labba úr mynd vinstra megin.

              IS HVH103-J-JA-1-125 · Eining · Ýmis ártöl
              Part of Egill Gunnlaugsson (1936 - 2008)

              JA - 1 - 125. Mannlífsmynd frá 50.ára afmælishátíð Hvammstangahrepps 8. - 10.júlí 1988. Frá vinstri talið Inga Guðmundsdóttir (1950), Aðalheiður Sveina „Alla“ Einarsdóttir (1962), þá Þórhallur „Haddi“ Jónsson (1952) og á hestum eru Skúli Árnason (1931-1994) frá Gnýsstöðum Vatnsnesi og fjær er Böðvar Stefán „Böddi“ Daníelsson (1923-1998) frá Fossseli í Miðfirði.

              IS HVH103-J-JA-1-152 · Eining · Ýmis ártöl
              Part of Egill Gunnlaugsson (1936 - 2008)

              JA - 1 - 152. Í Miðfjarðarrétt í Miðfirði. Frá vinstri í grænum stekk er Ingi Hjört Bjarnason (1965) frá Svertingsstöðum, við hlið hans með köflótta húfu er Guðmundur Karlsson (1931-2017) bóndi á Mýrum 3, lengra til hægri í brúnum léttum stakk og með brúnleita derhúfu er Benedikt Guðmundsson (1905-1990) bóndi á Staðarbakka I, fyrir aftan hann í köflóttri peysu er María Heiðland Sigurlaugsdóttir (1955) frá Staðarbakka II, lengst til hægri í brúnni rúllukragapeysu er Jón Ívar Jónsson (1946) bóndi á Skarfshóli.

              Án titils