Sýnir 238 niðurstöður

Nafnspjald
VLS · Einstaklingur · 27.02.1926 - 14.03.2007

Ingólfur lauk Samvinnuskólaprófi 1947. Sótti þriggja mánaða námskeið í meðferð og viðhaldi landbúnaðarvéla í Bandaríkjunum 1956. Starfsmaður Kaupfélags Vestur-Húnvetninga á Hvammstanga 1947–1949. Vann við og rak ásamt Karli Guðmundssyni bifreiðaverkstæði á Laugarbakka í Miðfirði 1950–1959. Sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Vestur-Húnavatnssýslu á Hvammstanga 1959–1995. Hreppstjóri Hvammstangahrepps 1960–1995. Í hreppsnefnd Hvammstangahrepps 1966–1970. Formaður skólanefndar Héraðsskólans á Reykjum 1971–1981. Alþingismaður fyrir Norðurland vestra 1979–1983 (Framsfl.). Sat m.a. fundi Evrópuráðsins á vegum Alþingis 1980–1983.
10 ára að aldri fór Ingólfur í fóstur til móðursystur sinnar Þórðveigar og eiginmanns hennar Davíðs Þorgrímssonar á Mið-Kárastöðum á Vatnsnesi.

Einstaklingur · 17.09.1921 - 18.01.2005

Var á Valdalæk, Breiðabólstaðarsókn V-Hún 1930. Bóndi á Efri-Svertingsstöðum í Miðfirði og víðar,síðar verkamaður á Hvammstanga. Síðast búsettur á Hvammstanga í Húnaþingi vestra. (Íslendingabók)

Einstaklingur · 27.10.1931 - 16.05.2017

Var á Mýrum, Ytri-Torfustaðahrepp V-Hún 1957. Húsgagnasmiður,byggingafulltrúi og bóndi á Mýrum III í Ytri-Torfustaðahrepp Miðfirði Húnaþingi vestra. Gengdi margvíslegum trúnaðarstörfum (Íslendingabók)

Árni Hraundal (1916 - 1988)
Einstaklingur · 15.09.1916 - 28.10.1988

Árni Eyjólfur Jón Óskar Ásgeirsson Hraundal.
Bóndi í Lækjarhvammi í Línakrahreppi/Kirkjuhvammshreppi V-Hún, síðast búsettur á Hvammstanga (Íslendingabók)