JA - 1 - 221. Í Víðidalstungurétt í Víðidal. Lengst til hægri er Jóhann Hermann Sigurðsson (1936-2003) bóndi í Litlu-Hlíð, fyrir framan hann er ljóshærður maður í ljósum jakka og lopapeysu það er Gunnlaugur Björnsson (1937) þáverandi bóndi í Nípukoti hjá honum stendur í köflóttri yfirhöfn Sigrún Þórisdóttir (1945) eiginkona hans, hjá þeim stendur Bjarni Kristmundsson „Bjarni í Dal“ (1930-2011), aðrir óþekktir.
JA - 1 - 139. Bílalest á vatnsnesvegi í Húnaþingi vestra. Í fremsta bílnum með höfuðið út um gluggan má sjá Ingólf Guðnason (1926-2007) sparisjóðsstjóri, aðrir óþekktir.
JA - 1 - 211. Í Víðidalstungurétt í Víðidal. Fyrir miðri mynd jakkafataklæddur maður að halda í kind er Jóhann Hermann Sigurðsson (1936 – 2003) bóndi í litlu-Hlíð, aðrir óþekktir.
JA - 1 - 133. Mannlífsmynd frá 50.ára afmælishátíð Hvammstangahrepps 8. - 10.júlí 1988. Frá vinstri við kofan er Einar Friðgeir Björnsson (1970) frá Bessastöðum í Miðfirði, sitjandi eru næst kofanum Aðalheiður Sveina „Alla“ Einarsdóttir (1962) þá Þórhallur „Haddi“ Jónsson (1952), svo Björn Þórir „Bangsi“ Sigurðsson (1935-2018) þá Böðvar Stefán „Böddi“ Daníelsson (1923-1998) frá Fossseli í Miðfirði og aftast í röðinni er Guðmundur Stefán „Stebbi Þórhalls“ Þórhallsson ( 1931-2020), standi fyrir aftan er Sigurður Gestsson (1918-2004) „Siggi í Mörk“ frá Mörk á Vatnsnesi og að bjóða meðlæti er Inga Guðmundsdóttir (1950).