Mostrando 141 resultados

Descripción archivística
Con objetos digitales
Imprimir vista previa Ver :

Réttir í Miðfirði, Húnaþingi vestra.

JA - 1 - 150. Í Miðfjarðarrétt í Miðfirði. Frá vinstri aftarlega, strákur í blárri peysu er Jón Magnússon (1969) frá Staðabakka II, við hlið hans í bláum galla (sést bara efri partur) er Björn Björnsson (1950) bóndi á Syðri-Reykjum, fyrir aftan hann með svarta húfu er Guðrún Þórdís Magnúsdóttir (1913-2002) bóndi á Saurum, fremst fyrir miðri mynd er Jón Böðvarsson (1949) bóndi á Syðsta-Ósi, fyrir framan en aftar er Guðmundur „Gúndi“ Sigurðsson (1955) brúarsmiður Hvammstanga, vinstra megin við í bleikri peysu er Gerður Salóme Ólafsdóttir (1952) bóndi á Syðri-Reykjum, fyrir framan hana í lopapeysu er dóttir hennar Hólmfríður Birna Björnsdóttir (1974) frá Syðri-Reykjum, aðrir óþekktir.

Sin título

Réttir í Miðfirði, Húnaþingi vestra.

JA - 1 - 149. Í Miðfjarðarrétt í Miðfirði. Frá vinstri Stefán Eggert Pétursson (1932-2014) bóndi Brúarholti, í appelsínum galla er Björn Einarsson (1941-1992) bóndi Bessastöðum, hægra megin á mynd með hvíta húfu og í hvítri peysu er Valgerður Þorvarðardóttir (1940) þáverandi bóndi á Söndum, fyrir aftan hana í rauðri peysu er Friðrik Böðvarsson (1952-2009) bóndi á Syðsta-Ósi, fyrir framan þau í bláum galla er Björn Björnsson (1950) bóndi á Syðri-Reykjum, fremst í grænum regnbuxum er Karl Ásgeir Sigurgeirsson (1943) frá Bjargi.

Sin título

Börn að leik.

JA - 1 - 146. Krakkar að leik í skurði. Stelpan sem snýr að myndasmið er Hjördís Sævarsdóttir (1970).

Sin título

Mannlífsmynd frá 50.ára afmælishátíð Hvammstangahrepps 8. - 10.júlí 1988.

JA - 1 - 136. Mannlífsmynd frá 50.ára afmælishátíð Hvammstangahrepps árið 1988. Mynd prentuð á stærra blað og skrifuð viðeigandi númer við fólk. Ýtarleg upptalning er í skrá hjá skjalasafni og í kassa JA-1. En fyrir þessa staðsetningu eru nöfnin eingöngu talin upp. Sjá má:
Sesselja Ólafsdóttir „Sella“ (1912-2005). Alhvíthærð eldri kona.
Íris Dögg Sigurðardóttir (1977) ljóshært barn í rauðri úlpu með dökkum kraga.
Jón Þorbergur Jakobsson (1962) “Jonni“ í SVFÍ úlpu og jakka og er með skegg.
Örn Ingi Gíslason (1945-2017) fjöllistamaður. Rétt sést í hann við hlið Jóns Þorbergs.
Aftarlega í grárri og svartri peysu er ljóshærður drengur/ungur maður líklega Baldur Heimisson (1971) frá Sauðardalsá á Vatnsnesi. Maður sem stendur aftarlega fyrir fram barn í blárri úlpu og er með gleraugu er mögulega Oddur Sigurðarson (1960), eða
Þorvaldur Haraldsson (1965) frá Helguhvammi „Toggi“. Gunnar Sigurður Konráðsson (1943) „Gunni Konn“.
Guðmundur Sigurðsson (1955) „Gúndi“. Stendur framarlega alskeggjaður í leðurjakka með rautt bindi. Jón Sigurðsson (1930-2008) „Nonni“. Stendur við hlið Guðmundar.
Jóhanna Ragna Eggertsdóttir (1939-2001) frá Þorkelshóli í Víðidal. Stendur við hlið Jóns, er með gleraugu og í fjólublárri og hvítri úlpu.
Júlíus Guðni Antonsson (1963) frá Þorkelshóli. Sést bara andlit en stendur hjá sjónum.
Gunnhildur Vigdís Þorsteinsdóttir (1931) „Dísa í Garði“. Stendur fyrir framan Júlíus Guðna í gráum jakka. Tryggva Margrét Eggertsdóttir (1932-2009) ættuð frá Skarði. Stendur fyrir framan Vigdísi og er í svartri úlpu. Kristinn Sigurðsson (1962) „Kiddi Sig“. Er fremst,horfir til hliðar og er í SVFÍ úlpu.
Birna Ragnheiður Þorbjörnsdóttir (1928-2010) frá Sporði í Þverárhreppi. Stendur við hlið Kristins og er í blárri peysu. Elísabet Bjarnadóttir (1949). Stendur við hlið Birnu í svartri úlpu rennt uppí háls.
Guðrún Eyja Erlingsdóttir (1946). Stendur fyrir framan Elísabetu í gráum jakka og með gleraugu.
Helgi Karl Engilbertsson (1978) er fyrir framan Guðrúnu í blárri,hvítri og grænni úlpu.
Snorri Engilbertsson (1982).
Jón Marz Ámundason (1921-2000) frá Bjarghúsum í Þverárhreppi.
Pétur Hilmar Guðbjörnsson (1959) frá Svalbarða á Vatnsnesi.
Eiríkur Pálsson (1941) frá Syðri-Völlum.
Eiríkur Jónsson frá Síðu/Bjarghúsum.

Mannlífsmynd frá 50.ára afmælishátíð Hvammstangahrepps 8. - 10.júlí 1988.

JA - 1 - 135. Mannlífsmynd frá 50.ára afmælishátíð Hvammstangahrepps 8. - 10.júlí 1988. Frá vinstri við kofan er Einar Friðgeir Björnsson (1970) frá Bessastöðum í Miðfirði, standandi og snýr baki í myndasmið er Inga Guðmundsdóttir (1950), sitjandi eru næst kofanum Aðalheiður Sveina „Alla“ Einarsdóttir (1962) þá Þórhallur „Haddi“ Jónsson (1952), svo Skúli Árnason (1931-1994) frá Gnýsstöðum á Vatnsnesi, þá Björn Þórir „Bangsi“ Sigurðsson (1935-2018) þá Böðvar Stefán „Böddi“ Daníelsson (1923-1998) frá Fossseli í Miðfirði þá Guðmundur Stefán „Stebbi Þórhalls“ Þórhallsson ( 1931-2020) og síðastur er Sigurður Gestsson (1918-2004) „Siggi í Mörk“ frá Mörk á Vatnsnesi. Að auki er kvikmyndafólk allt óþekkt.

Resultados 51 a 60 de 141