Showing 61 results

Archival description
Héraðsskjalasafn Vestur - Húnavatnssýslu Mannlífsmyndir
Print preview View:

61 results with digital objects Show results with digital objects

Réttir í Víðidalsrétt í Víðidal, Húnaþingi vestra.

JA - 1 - 221. Í Víðidalstungurétt í Víðidal. Lengst til hægri er Jóhann Hermann Sigurðsson (1936-2003) bóndi í Litlu-Hlíð, fyrir framan hann er ljóshærður maður í ljósum jakka og lopapeysu það er Gunnlaugur Björnsson (1937) þáverandi bóndi í Nípukoti hjá honum stendur í köflóttri yfirhöfn Sigrún Þórisdóttir (1945) eiginkona hans, hjá þeim stendur Bjarni Kristmundsson „Bjarni í Dal“ (1930-2011), aðrir óþekktir.

Egill Gunnlaugsson (1936 - 2008)

Réttir í Víðidalsrétt í Víðidal, Húnaþingi vestra.

JA - 1 - 214. Í Víðidalstungurétt í Víðidal. Vinstra megin á mynd uppá vegg er Jónína Ragna Sigurbjartsdóttir (1959) með flétturnar og við hlið hennar er Sigrún Herdís „Heddý“ Sigurbjartsdóttir (1957), maður með há kollvik rétt hjá þeim er Bjarni Kristmundsson „Bjarni í Dal“ (1930-2011), aðrir óþekktir.

Egill Gunnlaugsson (1936 - 2008)

Réttir í Miðfirði, Húnaþingi vestra.

JA - 1 - 150. Í Miðfjarðarrétt í Miðfirði. Frá vinstri aftarlega, strákur í blárri peysu er Jón Magnússon (1969) frá Staðabakka II, við hlið hans í bláum galla (sést bara efri partur) er Björn Björnsson (1950) bóndi á Syðri-Reykjum, fyrir aftan hann með svarta húfu er Guðrún Þórdís Magnúsdóttir (1913-2002) bóndi á Saurum, fremst fyrir miðri mynd er Jón Böðvarsson (1949) bóndi á Syðsta-Ósi, fyrir framan en aftar er Guðmundur „Gúndi“ Sigurðsson (1955) brúarsmiður Hvammstanga, vinstra megin við í bleikri peysu er Gerður Salóme Ólafsdóttir (1952) bóndi á Syðri-Reykjum, fyrir framan hana í lopapeysu er dóttir hennar Hólmfríður Birna Björnsdóttir (1974) frá Syðri-Reykjum, aðrir óþekktir.

Egill Gunnlaugsson (1936 - 2008)

Results 21 to 30 of 61